Kennarar
Ingibjörg Stefánsdóttir
Ég var í leiklistar og dansnámi í New York 1997 þegar ég uppgötvaði yoga. Einn af mínum
danskennurum hóf tímann alltaf á ashtanga vinyasa yoga. Ég varð strax hugfangin. Tveimur
árum seinna fluttist ég til L.A. Þar lærði ég Power yoga hjá Earths Power yoga í 7 mánuði.
Síðan lá leiðin heim til Íslands. Ég fór að kenna yoga í Kramhúsinu næstu 5 árin.
Ashtanga vinyasa Yoga heillaði mig hvað mest. Ég ákvað að skella mér til Indlands árið 2002
til að læra hjá meistaranum sjálfum. Ég hef farið til Indlands 5 sinnum,
lokið kennaraþjálfun hjá Brahmani yoga í Góa og verið í fjórum sinnum hjá Ashtanga meistaranum
Sri.K.Pattabhi Jois að iðka yoga. Hann lést í maí árið 2008. Ég er ákaflega þakklát fyrir að hafa
fengið tækifæri til að læra hjá honum. Ég hef farið á mörg styttri námskeið hjá reyndustu kennurum
í ashtanga vinyasa yoga í Evrópu og einnig fengið kennara í heimsókn til Íslands. Má þar nefna Rolf
Nojokat, Nancy Gilgoff, Anne Nuotio, Michael Gannon, Lino Miele og fl. Hugleiðslu og Pranayama hef
ég lært mest hjá hinum yndislega Emil Wendel. Ég hef lært Ayurvedic yoga nudd og Thai nudd á Indlandi,
Life coaching (markþjálfun) á Íslandi, og næringarráðgjöf hjá Institute of integrative nutrition í New York.
Yoga Shala Reykjavík opnaði ég árið 2005 sem heldur áfram að blómstra. Ég er skráð sem experienced yoga
teacher hjá
www.yogaalliance.com.
Helga Guðrún Snjólfsdóttir
Ég kynntist yoga um 18 ára aldur og fann strax hversu góð áhrif það hafði á mig. Það var svo þremur árum síðar í janúar 2002 að ég byrjaði að iðka Ashtanga Yoga, og það hitti beint í hjartastað! Þetta var í kramhúsinu og það var Ingibjörg sem var minn fyrsti Ashtanga kennari. Síðan þá hef ég verið svo lánsöm að læra hjá mörgum fremstu kennurum Ashtanga Yoga, meðal annars Anne Nuotio, Kristina Karitinos Ireland, Hamish Hendry, Rolf Naujokat og R. Alexander Medin. Síðast en ekki síst var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að hitta og læra hjá Guruji, Sri K. Pattabhi Jois, Sharath og fjölskyldu á 5 daga námskeiði í London 2005. Haustmisserið 2011 hlaut ég yogakennaraþjálfun hjá kennaranum mínum hinni yndislegu Lawino Maria Johnson. Yoga er fastur liður í minni tilveru og auðgar líf mitt ólýsanlega. Ég er búin að iðka Ashtanga Yoga meira og minna í 9 ár og hver æfing kennir mér eitthvað nýtt og meira um mig sjálfa, lífið sjálft og tilveruna. Ég trúi því að allir geti notið góðs af yogaiðkun og er því spennt að miðla reynslu minni áfram til iðkenda í Yoga Shala.
Eva Rún Þorgeirsdóttir
Ég fór í fyrsta jógatímann minn þegar ég var um tvítugt. Þá hafði ég verið að leita mér að einhverju formi af hreyfingu í nokkurn tíma, en áður hafði ég dansað klassískan ballet í nokkur ár. Ég varð strax algerlega heilluð af jóga og fljótlega var ég komin í besta líkamlega og andlega form sem ég hafði áður upplifað. Ég ákvað fljótlega að læra að verða jógakennari en tækifærið gafst ekki fyrr en mörgum árum síðar, ekki fyrr en árið 2009. Í millitíðinni lærði ég verkefnastjórnun í Englandi og síðar Danmörku, en jógaástundunin fylgdi mér hvar sem ég var í heiminum. Ég á tvær dætur og hef stundað jóga á báðum meðgöngunum mínum. Ég hef því fundið hversu góð áhrif jóga hefur á meðgöngu og fæðingu.
Ég fékk jógakennararéttindi eftir 200 stunda nám hjá Guðjóni Bergmann (eftir námsskrá Yoga Alliance) og einmitt á meðan á því námi stóð var ég ólétt af yngri dóttur minni. Það var þá sem áhuginn fyrir meðgöngujóga kviknaði, því mig langaði að miðla til annarra kvenna hvaða dásamlegu áhrif jóga getur haft á okkur á meðan við göngum með barn. Ég lauk námi í meðgöngujóga hjá hinni bresku Jane Mackarness sumarið 2011.
Auk þessa lærði ég að kenna krakkajóga hjá Gurudass Kaur Khalsa og hef kennt krakkajóganámskeið fyrir aldurinn 5-8 ára. Núna kenni ég krökkum jóga hjá Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík.
Viridiana Rodriguez
"May all beings everywhere be happy and free and may the thoughts and actions of our own lives contribute in some way to the happiness and that freedom for all."
-Lokah Samasta Sukinoh Bhavantu
Viridiana Rodriguez was born in Mexico city on December 14 1984 is a Media and Publicity profesionist and was raised within a Taekwondo Family, martial arts have been her based of discipline and integral development towards life, she started practicing at the age of 6 years old with her dad Cesar Rodriguez, world champion and member of taekwondo hall of fame.
At the age of 17 years old Viridiana started practicing Hatha Yoga with Eduardo Frettlöhr who taught her how to make of yoga:
"Her life and passion".
It was exactly during this time when she got in touch with the magical yoga world and various facts got her "by accident" in Love and astonished about it, working as a journalist in that time she got an interview with Dharma Mittra in the 4th National Yoga Festival in Mexico City, and heard straight from him benefits of yoga and how yoga can change lives, after this "accident" and feeling all possible love and purity around him, she knew it was not anymore an accident, it was : A WAKE UP CALL.
After moving to Iceland in 2008 life brought her into the Ashtanga World, inspired, guided and supported by her first Ashtanga teachers Anouk Petzoldot and Ingibjorg Stefánsdóttir, she decided to get 100% into it with one single goal : "Being able to share the beauty of yoga with everyone around her someday".
As practice passes by in Iceland she stills learning from various teachers day after day, getting the experience and beauty of practice with Ingibjorg Stefánsdóttir, the love and bright with Laruga Glaser, the knowldge and strenght with Lawino Maria, the foundation and stability with Julie Martin, the softness, tenderness and PURE love towards yoga with Alexander Medin and last but not least the Harmony, Dynamic, purity and oneness with Ryan Leier.
Vírí as called by people in Iceland, feels ready and happy to keep growing and sharing yoga with everyone.
OM.
Ryan Leier
Dynamic and inspirational, Ryan Leier brings his unique energy to every class he teaches. Whether in his own One Yoga studios or as an ambassador of yoga to communities around the world, his expression of this ancient, yet vital tradition consistently touches people's hearts.
Drawing profound inspiration from the birth of his daughter, Kiyah, Ryan set out to bring yogic teachings to children and created Vinyasa Yoga for Youth, an innovative non-profit organization designed to meet the physical, mental and spiritual needs of youth.
Ryan is a firm believer that, through steady practice and devotion, all people—regardless of age, gender, race or religion—can experience the Oneness of Yoga.
Ryan is primarily a student of the Krishamacharya yoga lineage and continues to study under Father Joe Pereira, by whom he was authorized to teach. Ryan trains with Baron Baptiste, Eddie Modestini and Nicki Doane (Maya), Danny Paradise, Srivatsa Ramaswami (Vinyasa Krama). He also received instruction from Ashtanga Guru Sri K. Pattabhi Jois. He is scheduled to travel to Pune and study at master BKS Iyengar's Institute. He works closely Dina Tsouluhas and the Moksha Yoga community, respecting their commitment to the environment, to charitable cause and to taking yoga off of the mat. Ryan is rooted in local sacred teachings. He studies and serves the Elders in his home province of Saskatchewan (which comes from the Cree word kisiskaciwani-spiv meaning "swift flowing river."
Ásta María Þórarinsdóttir
Ég held ég hafi alltaf verið yogina. Man eftir mér sitjandi í lotus sem barn að reyna að muna hvernig ætti að
fara í hinar og þessar stöður. Svo tóku annir lífsins við. Ég átti viðburðaríkt líf sem barn og unglingur, lauk 5 ára
háskólanámi, giftist og eignaðist 3 börn. Eftir að ég eignaðist eldri dótturina greindist ég með vefjagigt. Stanslaus
seta við tölvuskjáinn gaf mér bakverki en enga hamingju. Það var svo þegar líkaminn minn fann sig ekki aftur
eftir síðustu meðgönguna sem eitthvað þurfti að gerast. Ég þurfti að skríða uppá 3. hæðina í fyrstu tímana í
Yoga Studio hjá Ásmundi Gunnlaugssyni því grindin mín vildi ekki ganga saman. Dóttir mín fæddist 3. desember
1998, fyrsti yogatíminn var í apríl og í september var ég komin í kennaranám hjá Ásmundi í samstarfi við Shanti
Desai í Shanti Yoga Institude. Ég hef kennt stöðugt frá janúar 2000 og alltaf verið að læra meira. Lauk námi hjá
Dr. David Frawley (Pandit Vamadeva Shastri) í Ayurvedísku yoga og einnig sem Ayurvediskur lífsstílsráðgjafi.
Varð Ayurvediskur næringarþerapisti frá Atreya Smith. Hjá Aura Wellness Center lauk ég svo námi sem “Yoga
Anatomy and Physiology Teacher”, “Restorative Yoga Teacher” og tók “Yogic Stress Management Therapy
Course.” Ég hef lært svæðanudd, Ayurvediskt svæðanudd með aðstoð kasa skála, heilun og kínverskt
punktanudd. Það er alltaf amk ein yogabók á náttborðinu mínu, önnur á stofuborðinu, ein í eldhúsinu.....
Líkami minn, hugur og sál létu mig ekki í friði fyrr en þau höfðu fundið jafnvægi. Í dag skilgreini ég mig sem
heilbrigða manneskju og ég hef aldrei verið yngri. Ég er þakklát fyrir yoga og endalausar gjafir lífsins.
Ég kenni hjá Hress í Hafnarfirði og á litlu yogastofunni minn, Amarayoga á Strandgötunni. Ég hef verið formaður
Jógakennarafélags Íslands frá árinu 2008