Falleg orð
Yogastundun hjá Yoga Shala veitir mér:
Hugarró ( Peace of mind )
Nægjusemi
Náungakærleik
Líkamlegan styrk sem skilar sér í andlegu jafnvægi :)
Kær kveðja
Sveinbjörg
"Yoga shala welcoming love"
"As well known the more we love the less we fear, the less we fear the more we understand, the more we understand the more tolrance we have, the more tolerance we have the more compassion we feel, the more compassion we feel the more open we are, the more open we are the more we LOVE" ... Yogashala the best place to LOVE.
Yogashala the peace my soul was awaiting, the effort my body craved for, the love my heart asked for, the bright my mind thought of, the shine my eyes claimed for, the beauty my soul expected, the air my lungs deserved, the purity my sprit willed for, the freshness our smile reflected, the path to walk onto, the way to follow, the limit to know... our goal to reach.
with lots of love...
Viry.
Ég hafði nýlega greinst með vefjagigt eftir að hafa gengið á milli lækna í ár til að reyna að fá svör við því hvað væri að hrjá mig. Líkamlegt ástand mitt var ekki gott. Ég hafði þjáðst af verkjum og gífurlegri þreytu í öllum vöðvum í útlimunum auk þess sem jafnvægisskynið hafði verið hálf brenglað hjá mér. Öll hreyfing utan þess allra nauðsynlegasta hafði verið mér ofviða síðasta árið. Ég hafði ekki þrótt í höndunum til þess að halda á bók í lengri tíma ef ég vildi lesa, ég gat ekki borið innkaupapoka og tröppur voru eitthvað sem ég notaði ekki nema ég neyddist til þess og var þá skjálfandi á beinunum eftir að hafa gengið upp eina hæð. Mig verkjaði í vöðvana við alla áreynslu og gat aldrei haldið sömu stöðu nema í nokkrar sekúndur, þá komu verkirnir – svipuð tilfinning og þegar mjólkursýra fer að streyma um vöðvana þegar maður er búinn að reyna of mikið á sig. Öll líkamleg og andleg áreynsla var alveg ótrúlega erfið og ég kom örmagna heim úr vinnunni á hverjum degi. Ég þurfti að leggja mig eftir vinnu eða ef ég hafði reynt eitthvað á mig t.d. við heimilisstörfin, ef börnin voru erfið, ef ég hafði verið stressuð o.fl. Ég var líka ósköp ringluð í hausnum og þá sérstaklega þegar ég var orðin þreytt.
Ég var byrjuð að fá meðferð við vefjagigtinni sem fólst m.a. í sjúkraþjálfun til að lina verki og byggja upp styrk og þrótt. Ég byrjaði líka að synda því vatnið gerði mér auðveldara um vik að hreyfa mig. Ég varð vör við einhverjar framfarir en þær voru hægar og mér fannst þetta ekki vera að gera nóg fyrir mig. Ég var öll svo stíf og stirð og átti erfitt með að ná þreytunni úr vöðvunum og ná slökun. Ég reyndi ýmislegt fleira til að leita lækninga, prófaði t.d. að fara til náttúrulæknis og í nálastungur svo eitthvað sé nefnt en það virtist enginn geta hjálpað mér að ná bata.
Það var svo einhver sem benti mér á að Hatha yoga gæti verið eitthvað sem hentaði mér því það myndi mýkja upp líkamann með teygjum og svo væri það ekki of krefjandi þannig að ég ætti að geta stundað það þrátt fyrir veikindin. Ég hafði ekki hugmynd um hvað Hatha yoga var en fór heim og gúgglaði það og datt þá inn á síðuna hjá Yoga Shala. Ég ákvað að prófa hádegistímana þar sem þeim var líst sem rólegum tímum sem hentuðu öllum. Ég fann fljótt hvað jógað gerði mér gott, það bæði styrkti mig og liðkaði. Eftir að ég hafði stundað hádegistímana í nokkra mánuði langaði vinkonu mína mikið að skella sér á Astanga byrjendanámskeið og reyndi að draga mig með. Ég vissi að Astanga væri krefjandi jóga svo ég var ekki viss um að ég treysti mér á námskeiðið en eftir smá umhugsun ákvað ég að slá til og skella mér. Námskeiðið var ekki eins erfitt og ég hafði ímyndað mér og ég var fljót að finna það út að hver sem er getur stundað Astanga yoga. Ég var líka fljót að finna það að þetta var einmitt það sem ég hafði leitað að. Astanga yoga gerir kröfur til mín en ég stjórna ferðinni sjálf. Ég tek sífellt framförum á mínum eigin hraða. Hver einasta staða býður upp á að maður geti farið dýpra í hana eða bætt hana á einhvern hátt eftir því sem maður er kominn lengra í sinni ástundun.
Astanga yoga byggir upp á ákveðnum æfingum sem eru gerðar í ákveðinni röð. Ég hugsaði með mér í fyrstu að maður hlyti að fá leið á því að gera alltaf sömu æfingarnar aftur og aftur en það er ekki svo, þvert á móti. Þegar manni hefur tekist að læra seríuna verður æfingin manns eigin. Þegar ég kem í Mysore tíma get ég ákveðið hvernig ég vil hafa æfinguna mína þann daginn, ef ég er þreytt get ég farið mér hægar en ég get líka keyrt á fullum krafti. Oftast er það líka þannig að þó maður sé þreyttur áður en maður fer inn í salinn þá verður þetta að flæði þegar maður byrjar sem keyrir mann áfram og maður gleymir sér í æfingunum.
Það er skemmst frá því að segja að eftir að ég byrjaði að stunda Astanga yoga hefur heilsufar mitt tekið stakkaskiptum. Ég hef byggt upp mikinn styrk og náð að liðka mig alla til. Ég bý ekki lengur við þessa yfirgengilegu þreytu eins og áður og það er ekkert í hinu daglega amstri sem ég treysti mér ekki í. Astanga yogað hefur hjálpað mér á ótrúlega marga vegu í baráttu minni við að halda vefjagigtinni í skefjum. Það býður upp á æfingar sem reyna á marga ólíka vöðva líkamans sem og jafnvægið svo styrkingin verður í öllum líkamanum og jafnvægistilfinningin kemst í betra lag. Það veitir manni hvíld frá amstri dagsins og gefur því líka ró og slökun. Æfingarnar eru þannig upp byggðar að maður stoppar ekki lengi í hverri stöðu sem gerir það að verkum að vöðvarnir þola vel álagið því það varir ekki lengi í einu. Í baráttu minni við að ná upp styrk skiptir það sköpum því mig fer að verkja mjög fljótt í vöðvana ef ég er að halda sömu stöðu lengi.
Þegar maður stundar Astanga yoga byggir maður upp styrk og þol á eigin hraða og forsendum. Það hentar því hverjum sem er og út frá minni reynslu mæli ég hiklaust með því fyrir alla, hvort sem þeir eru að kljást við veikindi eða ekki. Í Yoga shala er líka vinalegt andrúmsloft og gott að koma þangað og stunda jóga í rólegu og afstressandi umhverfi undir handleiðslu frábærra kennara!