Um Yogashala
Yogastöðin Yoga shala Reykjavík var stofnuð árið 2005 af Ingibjörgu Stefánsdóttur Yogakennara og leikara. Lagt er upp úr að bjóða upp á notalegt, gefandi andrúmsloft í fallegu hlýju umhverfi. Allir kennarar í Yoga Shala hafa áralanga reynslu sem yogaiðkenndur og kennarar og hafa góða menntun að baki. Erlendir gestakennarar koma mjög reglulega í heimsókn. Sumir halda styttri námskeið, aðrir eru fastir kennarar í lengri tíma. Boðið er upp á persónulega þjónustu, allir eru velkomnir, allir eru jafnir og við viljum að fólk gangi út úr tíma með bros á vör.