Yogatímar
Best er að gera yoga á fastandi maga. Við mælum með því að fólk borði ekki 2-3 klukkutímum áður eða fái sér einhvern léttan bita.
Einnig biðjum við fólk um að nota ekki sterk ilmvötn eða rakspíra fyrir tíma og komi í hreinum æfingarfötum. Að fara í sturtu fyrir tíma
er líka góður kostur. Við bjóðum upp á yogadýnur frítt en mælum eindregið með því að ef að nemandi kemur í fleiri en 2 yogatíma á viku
að koma með sína eigin dýnu. Þar sem að það er dálítið heitt í salnum er gott að koma með handklæði í yogatíma.
Vinsamlegast láttu kennarann vita ef meiðsli eru til staðar, ef þú ert barnshafandi eða átt við veikinda að stríða. Þannig getum við
aðlagað yogatímann að þínum þörfum.
Endilega mæta tímanlega. Ef 5 minútur eru liðnar af tíma biðjum við þig um að koma aftur seinna.