10 TÍMA KLIPPIKORT
10 tíma klippikort gefur þér kost á að mæta þegar þér hentar, í hvaða tíma sem hentar.
Í stundatöflu okkar eru kraftmiklir og rólegir tímar, og allt þar á milli. Hvar sem þú stendur í þinni líkamsrækt, þá erum við með tíma sem henta þér, á þinni vegferð. Sjá nánari upplýsingar um tímana hér fyrir neðan.
YOGA NIDRA
Djúpslökun sem róar líkamann og hugann, fyrir öll getustig.
Í Yoga Nidra liggja iðkendur á þægilegum, mjúkum dýnum og eru leiddir í gegnum ferðalag í huganum. Yoga Nidra vinnur á þreytu líkamans með undraverðum hætti.
ASHTANGA YOGA
Leidd, hálf fyrsta sería í Ashtanga Vinyasa Yoga, fyrir vana.
Tíminn er byggður upp eftir rútínu sem er alltaf eins og er farið í gegnum hluta af fyrstu seríunni. Krefjandi flæði sem kennt er í mildum hita.
YIN/RESTORATIVE YOGA
Hægir og mjúkir tímar fyrir öll getustig.
Iðkendur flæða rólega í gegnum líkamsstöður sem haldið er í 3-5 mínútur. Í tímunum lærir þú að sleppa tökunum, anda djúpt og losa um spennu líkamans. Iðkun sem nærir bandvefi, liðamót líkamans og róar hugann í senn.
HATHA YOGA
Í Hatha Yoga leiðir kennari iðkendur í gegnum ólíkar líkamsstöður (asana) og öndunaræfingar (pranayama).
Hatha Yoga eru krefjandi tímar fyrir vana iðkendur en einnig þá sem skemur eru á veg komnir og vilja stíga út fyrir þægindarammann. Líkamsstöðum er haldið lengur en í Yoga flæði og Asthanga Yoga tímum. Nærandi á líkama og sál.
MORGUNKRAFTUR
Kröftugt, skemmtilegt og skapandi Yoga flæði kl. 07:00-08:00 á þriðju- og fimmtudögum í hverri viku. Frábær leið til að byrja daginn.
Iðkendur eru leiddir í gegnum skapandi rútínu af líkamsstöðum þar sem kennari býður upp á mismunandi erfiðleikastig. Innrauður hiti (35-37°c) í salnum gerir iðkendum kleyft að fara dýpra inn í stöður.
YOGA FLÆÐI
Fjölbreyttir tímar í heitum sal, sem henta öllum getustigum.
Iðkendur eru leiddir í gegnum skapandi rútínu af líkamsstöðum þar sem kennari býður upp á mismunandi erfiðleikastig. Innrauður hiti (35-37°c) í salnum gerir iðkendum kleyft að fara dýpra inn í stöður.
FASCIA YOGA
Mjög rólegir tímar, sem henta öllum getustigum.
Í tímunum er lögð áhersa á að losa um bandvefinn (e. fascia). Fljótandi og mjúkar hreyfingar í takt við öndun hafa þau áhrif að líkaminn mýkist og liðleiki hans eykst með aukinni hreyfigetu.
KYRRÐARJÓGA FYRIR KONUR
Kyrrðar jóga fyrir konur sem róar líkamann og hugann, fyrir öll getustig.
Í tímanum er leitt inn í Yoga Nidra sem gerir iðkendum kleyft að ná djúpri slökun á meðan kennari leiðir í gegnum ferðalag í huganum. Fullkominn tími sem vinnur á þreytu.
YOGA ÞERAPÍA
Rólegir, nærandi tímar sem hjálpa iðkendum að mynda brú á milli líkama og huga. Fyrir öll getustig.
Hver tími er einstakur en athyglinni oft beint að ákveðnu líkamssvæði sem kennari leggur áherslu á og leiðir iðkenur í gegnum öndun og hreyfingu til ná opnun.