200 KLST YOGA KENNARANÁM
KENNDU FÓLKI
AÐ IÐKA YOGA
Yogakennaranám Yoga Shala Reykjavík er grunnnám fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn á Yoga fræðunum og öðlast kunnáttu til að leiðbeina öðrum við iðkun Yoga.
Námið er 200 klukkustundir, kennt á íslensku og er samþykkt af Yoga Alliance, alþjóðlegum Yoga-kennara samtökum, sem og Jógakennarafélagi Íslands.
Nýtt nám hefst föstudaginn 15. september 2023. Umsókn sendist með tölvupósti. Segðu okkur hvað þú heitir, hvaða fyrri reynslu þú hefur af Yoga og símanúmer og hafðu samband:
namskeid@yogashala.is
Verð ég að vera rosalega "góður" iðkandi í yoga til að geta tekið þátt?
Nei, alls ekki. Hvað er að vera "góður" iðkandi í Yoga? Þú þarft ekki að geta staðið á haus eða farið í lótus til að komast í námið. Ef þú hefur ástríðu fyrir að læra um líkamann og hugann, að lyfta öðrum upp, sjá fólk blómstra og líða betur þá er þetta nám fyrir þig. Þú ert í öruggum höndum hjá virklega færum kennurum og undir lok námsins mun það sannarlega koma þér á óvart að finna hvernig þín eigin iðkun hefur dýpkað og breyst. Við mælum hinsvegar með að umsækjendur hafi iðkað yoga reglulega í a.m.k 6 mánuði áður en námið hefst.
.Nemendur fá fjölbreytta þjálfun, með áherslu á "Yoga-flæði" (e. Vinyasa flow). Saman köfum við ofan í allar helstu grunnstöðurnar (e. Asana) sem farið er í í flæði tímum. Þannig munu kennaranemar geta búið til og kennt sína eigin tíma undir lok námsins.
Yoga flæðið bindur þessa aðferðafræði saman og mun reynast traustur grunnur fyrir útskrifaða kennara að byggja upp frá.
Í hnotskurn snýst Yoga flæði um að tengja saman öndun, hreyfingu og líkamsstöður. Í kennaranáminu lærir þú að skapa umhverfi, með margvíslegum jógískum æfingum, þar sem iðkendur geta upplifað flæði.
- Öndunaræfingar (e. pranayama)
- Sólarhyllingar (e. sun salutations)
- Orkulásar (e. bhandas)
- Hugleiðsla (e. meditation)
- Aðstoð í stöðum (e. adjustments)
- Kyrjun Mantra (e. mantras)
- Djúpslökun í jógískum svefni (e. Yoga Nidra)
- Líffærafræði (e. anatomy)
- ... og margt fleira
.
FULLKOMIÐ NÁM
SAMHLIÐA VINNU
Námið stendur yfir í um 9 mánuði og fer kennsla fram eina helgi í mánuði (sjá tímasetningar hér fyrir neðan) þar sem við hittumst í Yoga Shala Reykjavík. Einnig verða nokkrir tímar á Zoom.
Þegar við hittumst í persónu verðum við saman á föstudagseftirmiðdögum (17-20) laugardögum og sunnudögum frá kl. 09:00-17:00, með klukkutíma hádegishléi á milli. Zoom hittingar verða á sunnudögum frá 9:00-12:00, 1 x í mánuði. Nánari upplýsingar um dagsetningar má sjá neðar í appelsínugulum glugga.
Námsefni kennaranámsins er fjölbreytt, umfangsmikið,áhugavert og skemmtilegt. Okkar reynsla er að kennaranemar upplifi námið sem persónulegt ferðalag þar sem jákvæð sjálfsskoðun er höfð að leiðarljósi.
Dagsetningar í náminu 2023 - 2024
15.09.23 (fös)
Opnunarathöfn
16.09.23 (lau) í Yoga Shala
17.09.23 (sun) í Yoga Shala
01.10.23 (sun) á Zoom
13.10.23 (fös) Yoga Shala
14.10.23 (lau) í Yoga Shala
15.10.23 (sun) í Yoga Shala
29.10.23 (sun) á Zoom
10.11.23 (fös) Yoga Shala
11.11.23 (lau) Yoga Shala
12.11.23 (sun) Yoga Shala
26.11.23 (sun) á Zoom
08.12.23 (fös) Yoga Shala
09.12.23 (lau) í Yoga Shala
10.12.23 (sun) í Yoga Shala
12.01.24 (fös) Yoga Shala
13.01.24 (lau) Yoga Shala
14.01.24 (sun) íYoga Shala
28.01.24 (sun) á Zoom
09.02.24 (fös) Yoga Shala
10.02.24 (lau) í Yoga Shala
11.02.24 (sun) í Yoga Shala
25.02.24 (sun) á Zoom
08.03.24 (fös) Yoga Shala
09.03.24 (lau) Í Yoga Shala
10.03.24 (sun) Í Yoga Shala
24.03.24 (sun) á Zoom
05.04.24 (fös) Yoga Shala
06.04.24 (lau) Yoga Shala
07.04.24 (sun) Yoga Shala
21.04.24 (sun) á Zoom
03.05.24 (fös) Yoga Shala
04.05.24 (sun) Yoga Shala
05.05.24 (laug) Yoga Shala
17.05.24 (fös) Yoga Shala
18.05.24 (lau) Yoga Shala
19.05.24 (sun) í Yoga Shala
01.06.24 (lau)
Útskrift
kENNARAR FRÁ
YOGA SHALA REYKJAVIK
Aðalkennarar og umsjónarmenn námsins eru Ingibjörg Stefánsdóttir, Klara Kalkusova og fleiri frábærir kennarar.
Saman hafa þau margra áratuga reynslu af iðkun og kennslu í Yoga á fjölbreyttu sviði og hafa þau öll mikla ástíðu fyrir því að hjálpa fólki að læra og vinna að því að eflast á sinni persónulegu vegferð.
Þrátt fyrir að námið sé persónuleg vegferð hvers og eins nemanda hefur ávallt myndast jákvæð samheldni innan hópsins, en það er eðli námsins að nánd skapast á milli þeirra sem feta þessa námsleið saman og við hvetjum nemendur til að halda hópinn og hjálpa hvoru öðru á meðan námið stendur yfir.
.
FRÍÐINDI KENNARANEMA: LÆRÐU MEÐ ÞVÍ AÐ IÐKA
Nemendur í náminu fá frítt inn í alla opna tíma í stundatöflu Yoga Shala Reykjavík á meðan náminu stendur og eru þeir hvattir til þess að iðka reglulega í eins mörgum tímum og þeir geta. Að auki fá kennaranemar 20% afslátt af völdum námskeiðum sem haldin eru í stöðinni.
Til þess að vera góður kennari þarf kennarinn nefnilega einnig að iðka Yoga sjálf eða sjálfur.
Undir lok námsins fá allir kennaranemar að kenna sinn eigin tíma í stöðinni og geta boðið vinum og vandamönnum að iðka Yoga undir sinni leiðsögn.
VERÐ og umsóknarferli
.
Við byrjum ferðalagið föstudaginn 15. september 2023 með opnunarathöfn þar sem allir nemendur hittast í fyrsta skiptið. Námið hefst svo formlega daginn eftir.
Snemmskráning gildir til 1.ágúst og er 495.000 kr. sem hægt er að dreifa á þrjár greiðslur. Fullt verð er 520.000 kr. Umsækjendur er beðnir um að greiða staðfestingargjald 50.000 kr. áður en námið hefst til að tryggja sér pláss. Athugið að staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt. Um leið og staðfestingargjald eða námið er greitt opnast aðgangur að öllum opnum tímum í stundaskrá Yoga Shala. Við hvetjum nemendur til að nýta sér það og byrja að hita sig upp fyrir námið.
Umsókn og fyrirspurnir sendist með tölvupósti. Segðu okkur hvað þú heitir, hvaða fyrri reynslu þú hefur af Yoga og símanúmer og sendu inn umsókn á: