INN Í AÐVENTUNA

Yoga Nidra & Innri Ró með Eddu Rún

FALLEGT FERÐALAG INN Í AÐVENTUNA

Desember er tími ljósa, eftirvæntingar og samveru, en líka tími þar sem dagarnir geta verið annasamir og hugurinn fullur af verkefnum. Gefðu þér gjöf í desember og farðu mjúklega Inn í Aðventuna með Eddu Rún og Flæði & Hugarró.


Staldraðu við í amstri dagsins, leyfðu líkamanum að hvílast og huganum að róast með djúpri slökun og leiðsögn í Yoga Nidra.


Inn í Aðventuna fer fram miðvikudaginn 9. desember frá 19:30-21:00 í Yoga Shala Reykjavík. Þar færð þú 90 mínútur af slökun og tíma fyrir þig. Gefðu þér stund þar sem þú færð tíma til að hvíla og vera.


Andaðu inn þakklæti, finndu kyrrðina og nærðu þig innan frá. 🤍


Helstu upplýsingar:

  • Hvenær: 9. desember kl. 19:30–21:00
  • Hvar: Yoga Shala Reykjavík
  • Verð: 5.900 kr
  • Umsjón: Edda Rún – Flæði & Hugarró


Engin reynsla er nauðsynleg, aðeins löngun til að gefa þér þessa stund.

Muna að skrá ykkur á viðburðinn til að tryggja ykkur dýnu.



Skráning á viðburðinn

HVAR:

Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.


FYRIR HVERJA:

Þá sem vilja slaka á og gefa eftir í aðdragana jóla.

HVENÆR:

Miðvikudaginn 9. desember


TÍMASETNING:

 19:30 - 21:00

Almennt verð:

5.900 kr.


Áskrifendur fá 15% afslátt af almennu verði. Spurningar sendist á namskeid@yogashala.is

Edda Rún er yogakennari og reikimeistari sem hefur djúpa ástríðu fyrir vellíðan, innri ró og orkujafnvægi. Hún vinnur með aðferðir sem styðja við líkamlega, andlega og tilfinningalega heilsu. Edda Rún á Flæði & Hugarró þar sem hún býður upp á reikimeðferðir, hugleiðslu og yoga nidra með því markmiði að hjálpa fólki að finna aftur flæði, léttleika og innri frið.



Skráning á viðburðinn