ARNGRÍMUR SIGMARSSON

Arngrímur hefur iðkað yoga í 15 ár og um leið kynnt sér yogafræði og hugleiðslu. Á eigin vegferð hefur hann fundið hvernig yoga getur stutt við bata, skapað friðsæld og innri sátt.


Árið 2025  lauk hann 200 stunda kennaranámi hjá Yoga Shala Reykjavík og byrjaði strax að kenna samhliða náminu. Arngrímur er tónlistarmaður og hefur ánægju af því að tvinna saman yoga og tónlist. Með mildi og hlýju aðlagar hann kennsluna að hópnum í hvert skipti.