SUMARÁSKORUN
YOGA SHALA REYKJAVÍK
JÚNÍ - ÁGÚST 2026
VIÐ SKORUM Á ÞIG Í SUMAR
Sumarið er tíminn þar sem við endurnærumst eftir langan vetur og fögnum á ný birtunni. Við gleðjumst yfir því að sólin er komin aftur og fögnum henni innilega með sólarhyllingum!
Það er margar ástæður fyrir því að halda yoga iðkun áfram yfir sumarmánuðina. Þú fyllist af meiri orku og jákvæðni þegar þú stundar yoga, þú færð tíma til að fara inn á við og róa hugann, auk þess sem aukin athygli á öndun nýtist í alla útiveru. Æfingarnar eru líka frábærar með annarri líkamsrækt t.d. hjólreiðum, golfi eða hlaupi.
Skráðu þig í Sumaráskorun Yoga Shala Reykjavík og sinntu líkama og huga í allt sumar. Allir sem taka þátt og mæta vel frá 1. júní til 31. ágúst geta unnið vinninga.
Það er til mikils að vinna og ef að sumarylurinn lætur ekki sjá sig, minnum við á að við erum með tvo hlýja og notalega sali hér í Yoga Shala Reykjavík.
Við hlökkum til að stunda yoga með ykkur í sumar!

HVERNIG VIRKAR ÞETTA?
Sumaráskorunin er einföld. Þú skráðir þig fyrir 7. júní og mætir eins vel og þú getur frá 1. júní til 31. ágúst. Þú getur sett þér markmið að mæta 25, 40, 60 eða jafnvel 80 sinnum! Það er til mikils að vinna og aðal verðlaunin eru 200 tíma Yoga Kennaranám Yoga Shala Reykjavík!
Við erum með fjögur verðlaunabil 25, 40, 60 og 80 skipti og allir sem skrá sig geta unnið verðlaun. Hvert verðlaunabil er vel skilgreint. Ef þú mætir 25 til 39 sinnum yfir áskorunartímabilið færðu verðlaun fyrir 25 tíma og ef þú mætir 40 sinnum yfir kemstu í næsta verðlaunabil og svo koll af kolli.
Það eru veglegir vinningar í boði, ekki bara frá okkur í Yoga Shala Reykjavík, heldur einnig frá Nordic Angan, Hydrate, Bio Effect, True Nature, Lemon, Anja Creations, 1977 og fleiri frábærum fyrirtækjum og einstaklingum.
Við eru innilega þakklát fyrir stuðninginn.
Skráðu þig í áskorunina fyrir 7. júní og vertu með okkur í yoga í allt sumar. Það margborgar sig að skrá sig til leiks!

SUMARTILBOÐ OG KORT Í YOGA
Viltu taka þátt í sumaráskoruninni en átt ekki kort hjá Yoga Shala Reykjavík? Engar áhyggjur þú getur verslað þér kortmeð hlekknum hér að neðan. Við bjóðum jafnt nýja iðkendur og þaulreynda velkomna. Við hlökkum til að sjá þig!
Við mælum sérstaklega með Hollur Yogi áskriftinni okkar. Í áskriftinni borgar þú fasta upphæð í hverjum mánuði og færð ótakmarkaðan aðgang að opnum tímum í stundarskrá. Ýmis önnur fríðindi fylgja áskriftinni svo sem afslættir og það að fá að bjóða gesti með í yoga einu sinni í hverjum mánuði. Í sumar bjóðum við líka upp á sérstakan kaupauka fyrir alla áskrifendur, þú færðu að bjóða einum gesti með þér í tíma 2 sinnum í hverjum mánuði (í júní, júlí og ágúst).
Ef áskriftin hentar þér ekki bjóðum við upp á fjölda annara korta. Við erum til dæmis með sérstök sumartilboð á 3 mánaða korti og 10 tíma klippikorti sem þú getur verslað til 7. júní. Bæði sumarkortin gilda til loka ágúst 2026 (yfir allt sumaráskorunar tímabilið).

