AUÐUR BERGDÍS SNORRADÓTTIR

Auður útskrifaðist úr 200 tíma yogakennaranámi Amarayoga árið 2020 og hefur síðan bætt við sig Yin Yoga og Pilates kennararéttindum.

Stuttu eftir útskrift hóf hún verkefnið Sumar Yoga þar sem hún leiddi útijógatíma í görðum íbúa Reykjavíkur undir lifandi tónlist. Síðan þá hefur hún einnig kennt jóga og pilates víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.

Auður hefur fjölbreyttan bakgrunn úr dansi sem hún tvinnar oft inn í jógatímana sína með flæði og forvitni að leiðarljósi.