danshreyfimeðferð
NÁMSKEIÐ MEÐ TÓMASI
Danshreyfimeðferð (e. dance movement therapy eða DMT) er listræn og líkamleg sálfræðimeðferð sem byggir á hreyfingu, dansi, tjáningu og skapandi æfingum. Meðferðin styður við tilfinningalega úrvinnslu, eflir andlegan vöxt og vellíðan, styrkir líkamlega heilsu og dýpkar sjálfsvitund.
Líkaminn geymir allar okkar reynslur og segir sögur í gegnum hreyfingu. Tilfinningar birtast í líkamstjáningu og í því hvernig við berum okkur í mismunandi aðstæðum. Í danshreyfimeðferð skapast öruggt rými þar sem hægt er að vinna með gamlar tilfinningar og áföll, en einnig að opna fyrir nýjar upplifanir og breytingar. Með orðalausri tjáningu í gegnum hreyfingu má öðlast dýpri skilning á sjálfum sér og tengjast öðrum á nýjan hátt.
Meðferðin miðar að því að víkka út hreyfisvið líkamans og samþætta þær breytingar við hugræna og tilfinningalega upplifun einstaklingsins.
Á þessu fjögurra vikna námskeiði mun Tómas Oddur dansþerapisti leiða þig í gegnum ýmsar æfingar sem tilheyra þessari aðferð. Þátttakendur munu fræðast um helstu hugtök og hugmyndafræði DMT og prufa sig áfram með hinar ýmsu æfingar. Unnið verður með hreyfingu og dans (bæði með tónlist og í þögn), einnig með félagaæfingum, skrifum, myndlist, skynjunaræfingum, hugleiðslu, öndun og samtali.
Danshreyfimeðferðin
fer fram 11. nóvember til 4. desember í Yoga Shala Reykjavík. Alls hittist hópurinn átta sinnum, á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00 - 22:15. Það er gott að hafa stílabók, penna, vatnsbrúsa og þæginleg/hreyfanleg föt í tímunum, en utan þeirra verða lögð fyrir stutt heimaverkefni. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að mynda semheldinn og þéttan hóp þar sem traust, virðing og trúnaður verður í forgrunni.
Takmarkað pláss í boði!
HVAR:
Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.
FYRIR HVERJA:
Þá sem upplifa þerapíu í gegnum dans og hreyfingu.
HVENÆR:
11. nóvember - 4. desember
TÍMI:
þriðjudaga og fimmtudaga
20:00 - 22:15
Verð:
36.900 kr.
Áskrifendur hjá Yoga Shala Reykjavík fá
15% afslátt af námskeiðinu.
Spurningar: namskeid@yogashala.is
Tómas Oddur Eriksson frumkvöðull, gleðigjafi, náttúru og tónlistarunandi með bakgrunn úr sviðslistum og BS í mannvistarlandfræði. Hann hefur yfir áratug af reynslu sem yoga, dans og hugleiðslu kennari. Hann hefur menntað sig á Íslandi, Bretlandi, Spáni, Indlandi, Sviþjóð og USA. Í gegnum árin hefur hann haldið marga viðburði, fyrirlestra og samkomur sem tengjast hreyfingu eða miða að því að lyfta mannsandanum.
Tómas leiðir iðkendur í núvitund og hreyfingu af mikilli innlifun, hlýju og gleði. Hann kennir námskeið, opna tíma, einkatíma, gefur nudd og fer reglulega í fyrirtækjaheimsóknir með uppbyggjandi hópefli eða fyrirlestra. Þá tók Tómas þátt í uppbyggingu Yoga Shala Reykjavík, leiddi kennaranám ásamt fleirum og er forsprakki Yoga fyrir Stirða Stráka.
Árið 2014 fór Tómas af stað með Yoga Moves sem eru hressandi yoga, dans og hugleiðsluviðburðir með lifandi tónlist eða DJ. Tómas hefur einstak lag á að kalla fram það besta í fólki og fá það til að sleppa sér í gleði og dansi. Þá hefur hann einnig lokið Sacred Dance kennaranámi hjá Julie Martin sem er form af hugleiðslu á hreyfingu. Nýlega lauk Tómas tveggja ára meistaranám í Dance Movement Pshychotherapy við UAB háskólann í Barcelona þar sem hann lærði að vinna með hreyfingu og dans meðferðarskyni.
