Eva Rós Gústavsdóttir

Eva Rós lauk jóga kennaranámi hjá Yoga Shala árið 2025 og er að ljúka í meistaranámi í klínískri sálfræði. Hún lauk einnig nýlega 10 daga Vipassana kúr sem inniheldur rúmlega 100 klst af hugleiðslu. Eva Rós kynntist jóga fyrst fyrir um 10 árum síðan og hefur stundað hugleiðslu frá barnsaldri í nær þrjá áratugi, hún hefur alla tíð haft áhuga á tengingu líkama, hugar og sálar og hefur reglulega haldið jóga og núvitundar námskeið. 


Hún hefur mikla reynslu af störfum sem efla geðheilsu en hún starfaði áður hjá Píeta samtökunum í fjögur ár ásamt því að sinna sjálfboðaliðastörfum hjá Konukoti og Rauða Krossinum. 


Í starfi og kennslu leggur hún áherslu á heildræna og samkennda miðaða nálgun þar sem samþætting á sómatískum og hugrænum aðferðum úr sálfræði, jóga og búddisma fá að mætast.