tilviljun? Ég held nú ekki!
Lögmál Karmans í jógískum ritum og daglegu lífi
vinnustofa með svetlönu álfheiði
Heimspeki & hugleiðsla
Hugtakið karma er mjög þekkt í jógaheiminum en er gjarnan misskilið eða notað í röngu samhengi, oft undir áhrifum dægurmenningar eða nýtísku aðferða í andlegri iðkun.
Í þessari vinnustofu munum við bæði ræða leiðir til að vinna með eigið karma og skoða upprunalegu skilgreiningarnar á karma út frá ýmsum jógískum ritum eins og til dæmis Bhagavad Gita, Upanisjadritum eða út frá Jóga sútrum Patanjalis. Við munum einnig skoða hvað við getum gert til að gera karmavinnu hluta af daglegri jógaiðkun.
Tilviljun? Ég held nú ekki! inniheldur upplestra úr völdum textum og nokkrar hugleiðslur sem hjálpa þér að upplifa umrædd hugtökin betur og hjálpa þér að finna þínar eigin aðferðir og leiðir í persónulegri andlegri iðkun. Vinnustofan fer fram þriðjudaginn 5. maí kl. 17:00 - 19:00 með tveimur stuttum pásum.
FYRIR: Þá sem vilja læra meira um karma bæði í jógískum ritum og í daglegu lífi.
HVAR: Yoga Shala Reykjavík, Skeifunni 7 (2. hæð)
HVENÆR:
Þriðjudaginn 5. maí
TÍMASETNING:
17:00 - 19:00
VERÐ:
5.900 kr.
Áskrifendur fá 15% afslátt
Spurningar? namskeid@yogashala.is
