Hvíldaryoga & Bandvefslosun
með Tómasi Oddi
Losun stífleika og aukin hreyfigeta!
Á þessu námskeiði verður boðið uppá einstaka samsetningu af æfingum út yin yoga, bandvefslosun, bollta og rúllu nuddi, hreyfimeðferð, djúpri öndun, teygjum og slökunaræfingum. Námskeiðið fer fram 11. - 27. maí á mánudögum og miðvikudögum frá 20:00-21:30.
Unnið verður með aukahluti og skapandi leiðir til að finna viðkvæma punkta, hreyfa við liðum og vöðafestum, finna djúpar teygjur, losa um líkamlega og tilfinningalega spennu og stuðla þannig að auknu jafnvægi og vellíðan.
Námskeiðið hentar öllum reynslustigum og eru öll velkomin. Ef þú glímir við spennu eða stoðkerfisverki þá er þetta námskeið tilvalið fyrir þig!
Tómas Oddur Eiríksson yoga & dansþerapisti hefur yfir 13 ára reynslu í faginu og er alltaf að þróa nýjar leiðir til að vinna með líkamann. Hann leiðir og fræðir iðkendur af einskærri fagmennsku og hlýju.
KENNARI:
Tómas Oddur Eiríksson
STAÐSETNING:
Yoga Shala Reykjavík,
Skeifan 7.
TÍMABIL:
11. - 27. maí 2026
TÍMASETNING:
mán & mið kl. 20:00-21:30
Verð:
26.900 kr.
Áskrifendur fá 15% afslátt af verðinu.
Spurningar: namskeid@yogashala.is
