HEILANDI JÓGAFERÐALAG

RÓLEGT NÁMSKEIÐ MEÐ HALLDÓRU

Komdu með í heilandi ferðlag

Halldóra Helgadóttir leiðir 4 vikna innra ferðalag sem leggur áherslu á heildræna heilun og vellíðan. Á námskeiðinu munt þú kynnast visku líkamans í gegnum fræðslu og vel valdar æfingar.


Námskeiðið verður á þriðjudögum frá 20. maí til 10. júní frá 17:30-19:30 í fallegum sal Yoga Shala Reykjavík. Í hverjum tíma sameinar Halldóra jógaæfingar, öndun, hugleiðslu, og dagbókarskrif til að fá þig til að skapa djúpa tengingu bæði við þig og líkama þinn.

 

Vika 1 (20. maí): Jarðtenging

  • Taugakerfið – Finna öryggi í líkamanum
  • Jarðtenging í gegnum fætur, mjaðmagrind og andardráttinn


Vika 2 (27. maí): Mýkt

  • Losa - Sleppa spennu og tilfinningalegu haldi
  • Kanna og losa spennu í mjöðmum, öxlum og kjálka


Vika 3 (3. júní): Styrkur

  • Styrkur innan frá – Byggja innri og ytri styrk
  • Virkja kjarnann, stöðugleiki og jafnvægi


Vika 4 (10. júní): Samþætting 

  • Koma heim – Líkamleg nærvera og innri tenging
  • Setjum allt saman; öryggi, mýkt, styrkur og kyrrð



Verið öll velkomin á þetta fallega og ljúfa ferðalag inn á við.


Skráning á námskeiðið

HVAR:

Yoga Shala Reykjavík, Skeifunni 7.


FYRIR HVERJA:

Þá sem vilja upplifa heilandi ferðalag

HVENÆR:

20. maí - 10. júní


TÍMI:

Þriðjudaga kl. 17:30 - 19:30

VERÐ:
23.900 kr


Áskrifendur fá 15% afslátt af námskeiðinu.

Allar fyrirspurnir eru velkomnar á  namskeid@yogashala.is

Halldóra Helgadóttir hefur iðkað jóga reglulega frá 2018. Hún útskrifaðist úr 200 tíma jógakennaranámi Yoga Shala árið 2021 og hefur allar götur síðan verið dugleg við að bæta við sig þekkingu og meiri kunnáttu.


Halldóra hefur klárað 200 grunn jógakennaranám, 120 tíma í Yin Yoga, 100 tíma í Hatha Yoga og 150 tíma í áfallamiðuðu heilandi yoga. Einnig er hún "Certified Life Awareness™ Breathwork Instructor"

Skráning á námskeiðið