JÓGA GRÚV

Orkumikill og skemmtilegur dans- og jógaviðburður með Sigyn Jöru


Ertu tilbúin að hrista af þér stressið, sleppa takinu og leyfa gleðinni að taka yfir?


Jóga grúv er orkumikill og skemmtilegur dans- og jógaviðburður þar sem
kraftmikil tónlist, dans, flæðandi jógahreyfingar og geggjuð stemning sameinast undir handleiðslu Sigynjar Jöru.


Hún segir þetta um viðburðinn: "Við byrjum á að virkja líkamann með öndun og mjúku jógaflæði áður en við keyrum upp orkuna, finnum taktinn og leyfum tónlistinni að leiða okkur áfram. Síðan hefst dansinn! 🔥Hér þarftu ekki um að kunna sporin eða gera allt fullkomlega, heldur að gefa þér leyfi að dansa í frjálsu flæði. Við endum síðan á teygjum og slökun."


Sigyn mun bæði leiða viðburðinn og stjórna tónlistinni. Hún elskar ekkert meira en að blanda góðri tónlist, jóga og dansi saman. Sigyn útskrifaðist sem jógakennari árið 2020 og hefur verið með dans jóga tíma reglulega í Yoga Shala Reykjavík frá útskrift. Hún hefur einnig prufað sig áfram sem plötsnúður síðustu árin og leikið undir dansi á skemmtistöðum við góðar undirtektir!


Engin dans- eða jógareynsla nauðsynleg.


Bara mæta, hreyfa sig og njóta!

HVAR?

Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.


FYRIR HVERJA?

Þá sem vilja sleppa takinu og leyfa gleðinni að taka yfir!

HVENÆR?

Föstudaginn 30. október 2026


TÍMASETNING?

kl. 20:00-21:30

VERÐ

4.900 KR


Spurningar? namskeid@yogashala.is


SKRÁNING Á JÓGA GRÚV