HELGA SNJÓLFS

Helga Snjólfs hefur kennt yoga, hugleiðslu og sjálfsrækt síðan 2012. Í tímum hennar er lögð áhersla á að hægja á, hlusta á líkamann og rækta tenginguna við sjálfan sig. Hún sameinar áralanga reynslu af yoga, markþjálfun og leiðsögn í hlýrri og jarðbundinni nálgun.


„Ég uppgötvaði yoga á menntaskólaárunum og fann strax að þar var eitthvað sem ég hafði þörf fyrir. Ég var, og er, mikið fiðrildi og í yoganu fann ég dýrmæta ró. Árið 2001 fór ég á Ashtanga yoga námskeið hjá Ingibjörgu Stefánsdóttur í Kramhúsinu og það varð upphafið að ævilangri iðkun. Í gegnum árin hefur mín yoga iðkun tekið á sig mismunandi myndir, en eitt hefur aldrei breyst, mikilvægi þess að taka frá tíma til að tengjast sjálfri mér og sameina hreyfingu og öndun. Það er enn í dag ein mikilvægasta undirstaða vellíðunar í mínu lífi. Ég byrjaði að kenna í Yoga Shala Reykjavík árið 2011 og finn enn sama þakklæti og gleði í hvert sinn sem ég fæ að leiða tíma og verða vitni að því sem gerist þegar fólk gefur sér tíma og rými til að mæta sjálfu sér."


Helga hlakkar til að taka á móti ykkur í yogasalnum!