NÚVITUND MEÐ EVU RÓS
HLÚÐU AÐ ÞÉR OG DRAGÐU ÚR STREITU
lærðu að lifa með núvitund
Núvitund með Evu Rós leiðir saman aðferðir úr klínískri sálfræði, jógafræðum og búddisma. Farið verður í gegnum ávinning núvitundar, áhrif hennar á lífsgæði, tilfinningar og sálarlíf, og hvernig hún nýtist í samskiptum. Námskeiðið verður kennt frá 8. til 29. september á þriðjudögum frá 19:00 - 21:00.
Núvitund með Evu Rós er fyrir þau sem langar að kynnast núvitundariðkun betur, hvort sem það eru fyrstu skrefin eða dýpkun á iðkuninni. Fyrir þau sem vilja hlúa að sjálfu sér og leyfa öðrum í kringum sig njóta góðs af iðkuninni og draga úr streitu í sínu eigin lífi.
Á námskeiðinu verður farið í gegnum nokkrar ólíkar núvitundar aðferðir. Til að byrja með verðir farið í stuttar sitjandi æfingar til að skerpa einbeitingu og kyrra hugann, en smám saman byggist iðkunin upp og setið verður í lengri tíma í senn. Að lokum verða núvitundar æfingarnar færðar yfir í svokallaðar Gangandi Hugleiðslur (e. walking meditation). Iðkendur læra líka að nota núvitund við hina ýmsu athafnir og innleiða iðkunina inn í daglegt líf og finna samkenndar miðaðar nálganir á núvitundina.
Skráning fer fram í gegnum Yoga Shala Reykjavík appið eða gegnum stundarskrá.
HVAR:
Yoga Shala Reykjavík, Skeifunni 7.
FYRIR HVERJA:
Þá sem vilja kynnst núvitund.
HVENÆR:
8. - 29. september 2026
TÍMI:
Þriðjudaga kl. 19:00 - 21:00
VERÐ:
21.900 kr
Áskrifendur fá 15% afslátt af námskeiðinu.
Allar fyrirspurnir eru velkomnar á
namskeid@yogashala.is
HVAÐ GERIR NÚVITUNDIN?
Núvitund er kjörið tól til að kynnast innihaldi hugsana sinna og fylgst er með þeim frá hlutlausu sjónarhorni.Þú sleppir tökum á sleggjudómum og eykur skilning á eigin sálarlífi.
Núvitund hjálpar þér að kyrra hugann og regluleg iðkun getur aukið einbeitingu, fyrirbyggt streitu og streitutengdan heilsuvanda. Núvitundin hjálpar við að draga úr ósjálfráðum viðbrögðum og gerir þér kleift að skapa andlegt svigrúm fyrir þig til að svara umhverfinu í stað þess að bregðast við því.
NÁNAR UM EVU RÓS
Eva Rós lauk jóga kennaranámi hjá Yoga Shala Reukjavík árið 2025 og er að ljúka í meistaranámi í klínískri sálfræði. Hún lauk einnig nýlega 10 daga Vipassana kúr sem inniheldur rúmlega 100 klst af hugleiðslu. Eva Rós kynntist jóga fyrst fyrir um 10 árum síðan og hefur stundað hugleiðslu frá barnsaldri í nær þrjá áratugi. Hún hefur alla tíð haft áhuga á tengingu líkama, hugar og sálar og hefur reglulega haldið jóga og núvitundar námskeið.
Hún hefur mikla reynslu af störfum sem efla geðheilsu en hún starfaði áður hjá Píeta samtökunum í fjögur ár ásamt því að sinna sjálfboðaliðastörfum hjá Konukoti og Rauða Krossinum.
Í starfi og kennslu leggur hún áherslu á heildræna og samkennda miðaða nálgun þar sem samþætting á sómatískum og hugrænum aðferðum úr sálfræði, jóga og búddisma fá að mætast.
