SAMHLJÓMUR
HLJÓÐFERÐALAG MEÐ VÖLU OG INGIBJÖRGU
VILTU UPPLIFA FALLEGT FERÐALAG?
Samljómur er hljóðferðalag með Ingibjörgu og Völu þar sem raddir og hljóðfæri mætast og skapa rými fyrir hvíld og innri kyrrð. Ferðalagið fer fram miðvikudaginn 2. desember kl. 20:00 í Yoga Shala Reykjavík.
Við bjóðum þér að koma þér vel fyrir, leggja amstur dagsins til hliðar og leyfa hljómunum (eða hljóðinu) að umvefja þig.
Þetta er stund til að hlusta, finna og vera, án þess að þurfa að gera neitt eða ná einhverju fram.
Verið hjartanlega velkomin.
HVAR:
Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.
FYRIR HVERJA:
Þá sem vilja slaka á og gefa eftir undir ljúfum tónum.
HVENÆR:
Miðvikudaginn 2. desember
TÍMASETNING:
20:00 - 21:15
Almennt verð:
5.900 kr.
Áskrifendur fá 15% afslátt af almennu verði. Spurningar sendist á namskeid@yogashala.is
Ingibjörg og Vala hafa báðar spilað á ýmis hljóðfæri og unnið með hljóðheilanir á síðustu árum. Þetta verður einstök upplifun sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
