Síðsumar Sæla
viðburður með Sigrúnu
Sumarlok og lækkandi sól!
Síðsumar Sæla með Sigrúnu er notaleg og hlý dekurstund í lok sumars. Viðburðurinn fer fimmtudaginn 17. september og er fimmti og síðasti hluti ferðalagsins um kínverska frumefnahjólið.
Við skoðum hvað hefðbundin kínversk læknisfræði tengir við árstíðina sem þeir kalla síðsumar. Við öndum, slökum, vökvum og nærum bandvefinn, bæði með ljúfum flæðandi hreyfingum og sjálfsnuddi með boltum og losum þannig um staðnaða orku. Eftir seiðandi hita sumarsins tökum við nú opnum örmum á móti mýkt og jarðtengingu síðsumarsins með mjúkri flæðandi og bandvefsnærandi hreyfingu ásamt ljúfum löngum og djúpum yin jóga stöðum.
Við lokum svo tímanum að vanda með blíðri hugleiðslu, djúpri slökun og heilandi tónum í gegnum hljóðheilun með kristalskálum og hörpu ásamt fleiri yndislegum hljóðfærum. Markmiðið er að tengjast andardrættinum, losa um og stuðla að ró, finna mildi og endurheimt í líkama og sál.
Verið öll hjartanlega velkomin, hvort sem þið voruð með okkur í haust, vetur, vor, sumar eða eruð að koma í fyrsta skipti.
HVAR:
Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7.
FYRIR HVERJA:
Alla sem fagna sumarlokum og undirbúa haustið!
HVENÆR:
Fimmtudaginn
17. september 2026
TÍMI:
20:00 - 22:00
Verð:
6.900 kr.
Áskrifendur fá 15% afslátt af viðburðinum. Spurningar: namskeid@yogashala.is
Nánar um Sigrúnu
Sigrún kennir aðallega Yin/Restorative Yoga með blöndu af bandvefslosun og tónheilun, en stekkur þó stundum til og kennir aðra tíma. Hún elskar að nota öll frábæru tólin sem jóga gefur okkur til að hjálpa iðkendum að komast í dýpra samband við sig sjálf og skapa þeim rými til að gefa eftir inn í mýkt og ró. Auk þess að hafa farið í gegnum mismunandi yoga nám, hefur hún brennandi áhuga á heildrænni heilsu og ver stórum hluta af frítíma sínum í að öðlast frekari þekkingu á því sviði.
