YOGA FYRIR KARLA

GRUNNNÁMSKEIÐ MEÐ STEINGRÍMI

14. SEPTEMBER - 28. SEPTEMBER 2026

Viltu byggja upp grunn að góðri líkamsrækt?

Þriggja vikna grunnnámskeið með Steingrími fyrir karla sem vilja kynnast jóga frá grunni og öðlast verkfæri sem nýtast bæði í daglegu lífi og annarri hreyfingu. 


Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöður jógaiðkunar og lærum grunnstöður, öndun og einfaldar æfingar sem bæta hreyfanleika, styrk og líkamsvitund. Sérstök áhersla verður lögð á mjaðmir, bak og axlir – svæði þar sem margir finna fyrir stirðleika, hvort sem hann kemur frá kyrrsetu, íþróttum eða annarri þjálfun.


Við kynnumst einnig hugmyndafræðinni á bak við jóga og skoðum hvernig iðkunin getur snúist um meira en liðleika og líkamlegar stöður; um athygli, öndun og betri tengingu við eigin líkama.


Markmiðið er að þátttakendur öðlist góðan grunn og nægilegt öryggi til að geta haldið áfram í opna jógatíma að námskeiðinu loknu.


Námskeiðið hentar jafnt þeim sem hafa aldrei stigið á jógadýnu og þeim sem hafa einhverja reynslu en vilja styrkja grunninn.


Skráning á námskeiðið

YOGA FYRIR KARLA

SEPTEMBER 2026


Námskeiðið verður haldið í Yoga Shala Reykjavík í Skeifunni 7, gengið inn vinstra megin við húsið á 2. hæð.

3 VIKUR / 5 SKIPTI

14. - 28. september

mánudögum og miðvikudögum

kl. 20:00-21:30 (90 min)


Engin fyrri reynsla eða sérstakur liðleiki nauðsynlegur.

Verð:

23.900 kr.


Nánari upplýsingar:

 namskeid@yogashala.is


Kennari námskeiðsins

Steingrímur Gauti hefur stundað jóga frá árinu 2016 og lokið 200 tíma jógakennaranámi og 150 tíma kennaranámi í terapeutísku jóga hjá Yoga Shala Reykjavík. Hann kennir reglulega Ashtanga Vinyasa og stundar einnig hugleiðslu og Zen.


Steingrímur kemur úr íþróttaheiminum og lék körfubolta um árabil áður en jóga varð hluti af hans daglega lífi. Samhliða jóga stundar hann styrktarþjálfun og hlaup og hefur sérstakan áhuga á því hvernig jóga getur stutt við bæði andlega og líkamlega heilsu og skapað betra jafnvægi á milli styrks, liðleika og hreyfanleika.



Í kennslu leggur hann áherslu á skýrar leiðbeiningar, góðan grunn og að hver og einn vinni út frá sínum líkama og forsendum.


Skráning á námskeiðið