Yoga Stelpur

Námskeið með Katrínu fyrir 14 til 16 ára

Katrín yogakennari skapar öruggt og nærandi rými þar sem stelpur fá tækifæri til að liðkast og styrkjast, bæði andlega og líkamlega, á sama tíma og þær upplifa kraft, orku og dýpri tengingu við sjálfar sig.


Á Yoga Stelpur fer Katrín yfir helstu yogastöðurnar og kennir stelpunum hvernig hægt er að finna bæði ró og meiri orku í daglegu lífi. Hún leggur áherslu á góða tækni og sterkan grunn. Stelpurnar fá að kynnast öndunaræfingum og hugleiðslu, auk þess að æfa sig í núvitund. Þær læra leiðir til að takast á við stress, efla sjálfstraust og hlusta betur á eigin líkama. Í lok hvers tíma leiðir Katrín endurnærandi slökun.


Markmið námskeiðsins er að styrkja tengsl stelpnanna við eigin líkama, byggja upp innri styrk og vellíðan og gefa þeim verkfæri sem nýtast bæði í skóla, íþróttum og daglegu lífi.


Námskeiðið stendur í sex vikur og verður kennt á mánudögum frá 15:30 - 17:00 (í 1 og 1/2 tíma í senn). Í hverjum tíma verður tekin fyrir fræðsla, æfingar og slökun. Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á katrin@yogashala.is. Taktu fram bæði nafn og aldur þinnar stelpu (ef þú vilt nota frístundarstyrk fyrir námskeiðið máttu senda kennitöluna hennar). Þú færð síðan sendar til þín upplýsingar um greiðslumöguleika.   

FYRIR HVERJA

14 - 16 ára stúlkur sem hefðu gott af því að kynnast öllu því góða sem tengist yoga iðkun!


HVAR

Yoga Shala Reykjavík, Skeifan 7

HVENÆR

4. maí - 8. júní 2026


TÍMI
á mánudögum kl. 15:30 - 17:00


SKRÁNING*

katrin@yogashala.is

VERÐ*

21.900 kr


* Taktu fram nafn og aldur þinnar stelpu í skráningunni. Þú færð síðan greiðsluupplýsingar sendar til þín í tölvupósti.



UM KENNARANN

Katrín er fastur jógakennari hjá Yoga Shala. Hún hefur fjölbreyttan bakgrunn í hreyfingu, hún hefur iðkað mikið jóga og hefur æft alls konar dans í gegnum ævina. Katrín útskrifaðist úr Kennaranámi Yoga Shala Reykjavík árið 2021 og hefur síðan þá bætt við öðru námi eins og Heilandi Yoga og Hatha Yoga. Katrín hefur kennt yoga flæði, yoga nidra og ýmsa aðra tíma frá útskrift. Hún hefur auk þess haldið nokkur byrjendanámskeið, framhaldsnámskeið og tónlistar viðburði hjá Yoga Shala.