Skúli


Skúli Bragason

Skúli hefur haft áhuga á íþróttum og hreyfingu síðan hann man eftir sér. Hann hefur brennandi áhuga á öllu sem við kemur andlegri og líkamlegri heilsu. Hann æfði fimleika sem barn og fór síðar yfir í fótbolta. Stuttu eftir að fótboltaskórnir voru lagðir á hilluna byrjaði hann að stunda jóga reglulega og varð gríðarlega heillaður af bæði líkamlegum og andlegum ávinningum sem jóga hefur.


Hann hefur gríðarlega gaman að handstöðum og hefur einbeitt sér mikið að handstöðutækni undanfarin ár.


Skúli lauk 200 tíma hatha vinyasa jóga námi hjá Vikasa á eyjunni Koh Samui í Thailandi í maí 2020.


Share by: